Til að brydda uppá einhverju nýju var ákveðið í samráði við Judodeild Ármanns að hafa sameiginlega æfingu beggja félaga þriðjudagsvöldið 31. mars hjá Ármanni. Ásamt iðkendum frá JR og Ármanni voru einnig iðkendur frá ÍR og KA. Þetta var skemmtileg tilbreytni sem gera mætti oftar. Æfingunni stjórnuðu þeir Yoshihiko Iura þjálfari Ármanns og Zaza Simonishvili landsliðsþjálfari.








