Egill Blöndal (UMFS) heldur utan á morgun til Japans ásamt Garðari Skaftasyni þjálfarar og mun hann keppa á Tokyo Grand Slam sem fer fram dagana 2-3 desember. Tokyo Grand Slam er ásamt Paris Grand Slam sterkasta judo mót sem haldið er ár hvert fyrir utan heimsmeistaramótið. Egill keppir næsta sunnudag þ.e 3. desember en hann keppir í -90 kg flokknum þar sem eru 38 þátttakendur og þar á meðal er Aleksandar Kukolj (SRB) sem er efstur á heimslistanum í þeim flokki. Á eftirfarandi tenglum verður hægt að fylgjast með mótinu hér og hér og í beinni útsendingu.