Vormót JSÍ 2025 í aldursflokkum, U13/U15/U18/U21, verður haldið á Akureyri 21. mars í KA heimilinu. Mótið hefst kl. 10 og áætluð mótslok um kl. 16. Vigtun verður í KA heimilinu föstudagskvöldið 20. mars frá kl. 18-18:30 og einnig að morgni mótsdags frá 8:30-9:00. Farið verður með rútu frá JR föstudaginn 20. mars um kl. 14 og komið til baka daginn eftir um kl. 21. Kostnaður, rúta og gisting (hótel/uppábúin rúm með morgunmat) um 15.000 kr. sem JR leggur út fyrir og rukkar þátttakendur eftirá en JR greiðir keppnisgjaldið sem er 3.000 kr. á mann. Þátttakendur þurfa að hafa með sér pening fyrir mat og drykkjum sem hver og einn ákveður sjálfur. Með hópnum fara þrír til fjórir þjálfarar frá JR. Myndin hér ofar er af JR þátttakendum 2025.

