Silfur og brons á Danish Open

Skarphéðinn Hjaltason -90 kg og Natalia Stobinska -78 kg unnu til silfurverðlauna í senioraflokkum og Ari Einarsson vann til bronsverðlauna í U18 -81 kg flokki. Skarphéðinn sigraði í þrjá andstæðinga á leið í úrslitin en tapaði þar fjórðu viðureigninni. Viktor Kristmundsson -100 kg keppti um bronsverðlaunin í senioraflokki sem og Jónas Guðmundsson í -81 kg flokki en bæði í seniora og U21 árs og vann hann alls sjö viðureignir. Aðrir keppendur okkar stóðu sig býsna vel og unnu nokkrar viðureignir og sumir fleiri en eina og fleiri en tvær en náðu ekki að keppa um verðlaun. Mótið var vel sótt en þátttakendur voru rúmlega 900 frá 20 þjóðum. Hér má finna úrslitin.