Síðustu æfingar á vorönn 2025

Nú fer að líða að síðustu æfingum á vorönninni. Á morgun kl. 17 verður sameiginleg æfing hjá 5-6, 7-10 og 11-14 ára og er það jafnframt síðasta æfingin hjá þessum aldurshópum á þessari önn nema hjá 11-14 ára en síðasta æfing hjá þeim verður 23. maí. Æfingin verður aðallega í formi leikja síðan verða afhent viðurkenningarskjöl fyrir þátttökuna í vetur, myndataka af hópnum og að lokum verður boðið uppá í pizzu og drykki.

Í skoðun er að halda æfingum áfram hjá 11-14 ára í einn mánuð í viðbót ef næg þátttaka fæst og verður það tilkynnt næstu daga ef af verður.

Síðustu æfingar á vorönn 2025 hjá öllum 15 ára og eldri, Gólfglíma 30+ og Kvennaæfing verða í þessari viku, 19-24 maí samkvæmt stundaskrá. Meistaraflokkur mun hinsvegar æfa áfram í sumar, líkast til fram í miðjan júlí og er öllum iðkendum 15 ára eldri velkomið að mæta á þær æfingar sem verða á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 18:00-19:30. Einnig munu æfingar hjá Gólfglímu 30 + verða eitthvað fram haldið í sumar á sömu dögum og sama tíma og á vorönninni.