Helena Bjarnadóttir, Aðalsteinn Björnsson, Mikael Ísaksson og Romans Psenicnijs keppa um helgina á Sarajevo Junior European Cup 2026 í Bosníu og Herzegovinu og með þeim í för er Zaza Simonishvili landsliðsþjálfari. Mótið stendur yfir frá 7 til 8 febrúar og að móti loknu taka þau þátt í æfingabúðum frá 9-11 febrúar. Helena keppir á morgun laugardaginn 7. febrúar og allir strákarnir keppa svo á sunnudaginn. Keppnin hefst klukkan 8 að morgni á okkar tíma báða dagana. Helena keppir á velli 3 og á 25 viðureign sem gæti verið um kl. 10. Romans keppir líka á velli 3 og á 7 viðureign, Alli á 3 viðureign á velli 2 og Mikael á 9 viðureign á sama keppnisvelli. Þátttakendur eru 304 frá 21 þjóð, 202 karlar og 102 konur. Hér er drátturinn og fylgjast má með keppninni í beinni útsendingu á JudoTv.


