Portimao Junior European Cup 2026

Helena Bjarnadóttir og Aðalsteinn Björnsson keppa um helgina á Portimao Junior European Cup 2026 í Portugal og með þeim er Zaza Simonishvili landsliðsþjálfari. Helena keppir á morgun laugardaginn 7. mars og mætir Alessia Esposito frá Ítalíu og Aðalsteinn á sunnudaginn og mætir Stanislav Yoltukhovsky frá Portúgal. Keppnin hefst klukkan 10 að morgni á okkar tíma. Helena keppir á velli 3 og á 19 viðureign sem gæti verið um kl. 11:15 og Aðalsteinn á 10 viðureign á velli 2 sem gæti þá verið um kl. 10:45. Þátttakendur eru 362 frá 23 þjóðum, 208 karlar og 154 konur. Hér er drátturinn og fylgjast má með keppninni í beinni útsendingu á JudoTv. Mótið stendur yfir frá 7 til 8 mars og að móti loknu fara þau til Tékklands og taka þar þátt í Nymburk OTC æfingabúðunum.