París Grand Slam 2026 er haldið um helgina 7-8 febrúar. Grand Slam París sem er seniora mót er líklegast sterkasta Grand Slam mót ársins þar sem mætast flestir bestu judomenn og konur heims 488 keppendur frá 78 þjóðum. Því miður erum við ekki með keppendur núna en á næsta ári má búast við því. París Grand Slam er jafnframt eitt skemmtilegasta mótið til að fylgjast með svo ekki sé talað um að mæta á staðinn en höllin, Accor Arena Bercy sem tekur um 20.000 manns, er sneisafull alla helgina sem er kanski ekkert undarlegt því judoiðkendur í Frakklandi eru um 600.000 manns. Búið er að draga og hægt er að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu.

