OTC Nymburk 2026

Þau Helena Bjarnadóttir og Aðalsteinn Björnsson ásamt Zaza Simonishvili halda til Tékklands að loknu Junior EC í Portugal til að taka þátt í OTC Nymburk æfingabúðunum sem haldnar verða dagana 9-16 mars. Þar munu þau hitta fyrir Weroniku Komendera, Mikael Ísaksson, Skarphéðinn Hjaltason og Viktor Kristmundsson sem einnig sækja æfingabúðirnar og verða þau þar í fimm daga frá 9. til 13. mars. Æfingabúðir þessar eru haldnar árlega og eru liður í röð æfingabúða í Evrópu sem nefnast Olympic Training Centre (OTC) og eru haldnar af Evrópska Judosambandinu (EJU) í samvinnu viðkomandi landssamband og koma þátttakendur allsstaðar að úr heiminum og skipta hundruðum en í fyrra voru þátttakendur tæplega 600 frá 36 þjóðum.