Æfingar hefjast á ný 5. janúar 2026 samkvæmt stundaskrá.
Byrjenda og framhaldsnámskeið 5-6 ára barna á laugardögum kl. 10
Byrjenda og framhaldsnámskeið 7-10 ára barna á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17
Byrjenda og framhaldsnámskeið 11-14 ára barna mánudaga, miðvikudaga, föstudaga kl. 17
Byrjendanámskeið 15 ára og eldri mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20
Gólfglíma, byrj./framh. 30 ára og eldri þriðjudaga, fimmtudaga kl. 17 og laugardaga kl. 11
Meistaraflokkur og framhald 15 ára og eldri alla daga vikunnar kl. 18
Kvennatími byrjendur og framhald 15 ára og eldri mánudaga og miðvikudaga kl. 17
Byrjendur fá fría prufutíma, komdu og prófaðu í viku, það er frítt. Ekki þarf að skrá sig í prufutíma, bara mæta á staðinn í réttan tíma og láta vita af sér, en það væri samt gott að fá tilkynningu um það á netfangið jr@judo.is. Hægt er að fá lánaðan judobúning í prufutíma en það er líka í lagi að mæta með síðar íþróttabuxur og bol. Judobúningar fást hjá JR.
Ef ákveðið er að halda áfram að loknum prufutíma þá er hér gengið frá skráningu og námskeiðsgjaldi. Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að hafa samband í síma 588-3200 eða senda tölvupóst á netfangið jr@judo.is


