Norðurlandameistaramótið 2025 verður haldið í Kaupmannahöfn dagana 10-11 maí og eru skráðir keppendur tæplega sexhundruð frá öllum Norðurlöndunum auk keppenda frá Álandseyjum og Eistlandi. Á laugardaginn verður keppt í senioraflokki og aldursflokki U18 og á sunnudaginn í U21 árs og veterans sem eru keppendur 30 ára og eldri. Báða dagana hefst keppnin á okkar tíma kl. 7:30 (U18 og U21) og seniorar og veterans kl. 11:30. Það eru þrettán keppendur frá Íslandi og með þeim fara Zaza Simonishvili landsliðsþjálfari og Þormóður Jónsson þjálfari og fararstjóri og Bjarni Skúlason og Marija Dragic Skúlason munu bætast í hópinn í Kaupmannahöfn. Auk þeirra verða dómararnir Björn Sigurðarson og Gunnar Jóhannesson með í för og Gísli Egilson formaður JSÍ sem sækir fund judosambanda Norðurlanda. Flestir keppendurnir okkar munu keppa í tveimur aldursflokkum þannig að keppendur í U18 keppa líka í U21 og keppendur í U21 keppa líka í senioraflokkum. Keppni í aldursflokki 30 ára og eldri (Veterans) er síðast á dagskrá og ætla þeir Þormóður og Zaza að taka þátt í þeirrri keppni ef einhverjir mótherjar verða þar í þeirrra aldurs og þyngdarflokki og verður ekki síður skemmtilegt að fylgjast með þeim.
Í aldursflokki U18 keppa þau Eyja Viborg -52, Weronika Komendera -57, Helena Bjarnadóttir -63, Orri Helgason -66, Jónas Guðmundsson -73, Dagur Ingibergsson og Gunnar Tryggvason -81 og Viktor Kristmundsson í +90 kg.
Í aldursflokki U21 árs keppa allir ofangreindir auk Mikaels Ísakssonar -81 og Arnars Arnarssonar -100 kg.
Í senioraflokki keppa þeir Böðvar Arnarsson og Mikael Ísaksson -81, Skarphéðinn Hjaltason -90, Arnar Arnarsson -100 og Kjartan Hreiðarsson +100 kg.
Í veterans flokki keppa Zaza Simonishvili -73 (M1+2) og Þormóður Jónsson +100 (M3+4)
Hér er hægt er að sjá úrslitin og fylgjast með gangi mótsins og hér er streymi frá mótinu.

