Keppa á Danish Open 2026 um helgina

Danish Open 2026 verður haldið um næstu helgi þ.e. dagana 21. og 22. febrúar. Tíu keppendur frá Íslandi eru á meðal þátttakenda frá sex klúbbum, það eru þau Ari Einarsson (JRB), Þórður Harðarson og Ólafur Karlsson (JG), Magnús Þórðarson (ÍR), Jónas Guðmundsson, Mikael Ísaksson, Skarphéðinn Hjaltason og Viktor Kristmundsson (JR), Natalia Stobinska (Ármanni) og Jóhanna Noack (Tindastól). Einnig stóð til að þau Vasileios Tsagkatakis og Eyja Viborg úr JR myndu keppa en vegna meiðsla urðu þau að hætta við þátttöku. Keppendum til aðstoðar eru þeir Zaza Simonishvili landsliðsþjálfari og Gísli Egilsson. Á morgun laugardaginn 21. febrúar er keppt í senioraflokki og U18 og á sunnudaginn í U21 og U15. Að loknu móti taka þau þátt í tveggja daga æfingabúðum. Hér er hægt að fylgjast með mótinu.