Góumót JR sem dregur nafn sitt af Góunni fór fram laugardaginn 21. febrúar s.l. Mótið var fyrst haldið árið 2009 svo þetta var það sautjánda í röðinni en það féll niður 2019. Góumótið sem opið er öllum klúbbum er æfingamót ætlað yngstu iðkendunum (5 til 10 ára) sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og allir þátttakendur fá verðlaun.
Keppni barna 5-6 ára sem er JR innanfélags “keppni” var haldin á æfingatíma þeirra fyrr um morguninn og fengu allir þátttakendur sín gullverðlaun að loknu móti. Þátttakendur í aldursflokki 7-10 ára voru fimmtíu og þrír frá fimm klúbbum auk Judofélags Reykjavíkur. Keppni hófst kl. 13:30 og var fyrst keppt í aldursflokkum U8 og U9 og lauk þeirri keppni um kl. 15 og síðan var keppt í aldursflokkum U10 og U11 og voru mótslok um kl. 16:00. Margir þátttakendanna voru að taka þátt í sínu fyrsta móti og stóðu þeir sig vel sem og aðrir keppendur og höfðu þjálfarar þeirra í nógu að snúast. Keppendum er raðað saman eftir aldri og þyngd og keppa stúlkur og drengir stundum saman í flokkum ef þannig stendur á og einnig þarf stundum að færa keppendur á milli aldursflokka til að þyngd keppenda sé sem jöfnust. Mótið tóks vel í alla staði og sýndu börnin oft á tíðum ótrúlega flott judo, Þau voru útsjónarsöm, flott gólfglíma og glæsileg köst.
Jóhann Másson hélt utan um JR keppendurna ásamt nokkrum reyndum JR keppendum úr aldurshópi 11-14 ára sem stóðu sig alveg frábærlega en það voru þau Erla Haraldsdóttir, Freyja Friðgeirsdóttir og Jemerllein Machado sem stóðu vaktina. Mótsstjórn og klukka var í höndum þeirra Þorgríms Hallsteinssonar og Benjamíns Blöndal og um dómgæsluna sáu þeir Ari Sigfússon og Kolmar Jónsson. Hér neðar eru myndir frá keppninni, videoklippa og úrslitin.
















































