Góumót JR 2026

Góumót JR 2026 sem er opið öllum klúbbum verður haldið laugardaginn 21. febrúar. Mótið var fyrst haldið 2009 og hefur jafnan verið fjölmennt. Það er hugsað sem æfingamót fyrir aldursflokka U8, U9, U10 og U11 (7, 8,9 og 10 ára) og fá allir þátttakendur verðlaun. Skráning er til miðnættis 17. febrúar í skráningarkerfi JSÍ og sjá forsvarsmenn klúbba um allar skráningar og greiðslu þátttökugjalda. Vigtun verður frá kl. 12:30 til 13:00 og keppnin hefst svo eins fljótt og hægt er að lokinni vigtun og ekki seinna en kl. 14:00 og ætti að ljúka um kl. 16:00. Nánari tímasetning að lokinni skráningu. Muna að mæta með börnin á tilgreindum tíma í vigtunina svo enginn missi af þátttöku og mótið geti hafist samkvæmt áætlun. Hér er umfjöllun og myndir frá Góumótinu 2025.