
Í hófi sem Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands héldu í Hörpu 28. desember þar sem kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur var kjörinn íþróttamaður ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna veitti Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands einnig viðurkenningar til íþróttakvenna og íþróttamanna ársins 2017 í sérgreinum íþrótta. Þar fengu judomaður og judokona ársins þau Þormóður Árni Jónsson, JR og Anna Soffía Víkingsdóttir, KA sínar viðurkenningar afhentar. Þar sem að Anna Soffía komst ekki til að taka við sinni viðurkenningu tók Jóhann Másson formaður JSÍ við henni fyrir hennar hönd. Óskum við þeim til hamingju með þessar viðurkenningar og sérstakar hamingjuóskir sendum við til Ólafíu með titilinn íþróttamaður ársins 2017, hún er vel að því komin.













JSÍ verður með dan gráðupróf mánudaginn 11. desember kl. 20:15 og verður það haldið hjá Judofélagi Reykjavíkur að Ármúla 17.


Egill Blöndal (UMFS) heldur utan á morgun til Japans ásamt Garðari Skaftasyni þjálfarar og mun hann keppa á Tokyo Grand Slam sem fer fram dagana 2-3 desember. Tokyo Grand Slam er ásamt Paris Grand Slam sterkasta judo mót sem haldið er ár hvert fyrir utan heimsmeistaramótið. Egill keppir næsta sunnudag þ.e 3. desember en hann keppir í 

