Þeir Jón Þór Þórarinsson og Hermann Unnarsson fóru með sjö manna hóp á Welsh Open Junior & Senior Championships 2017 sem fram fór í gær í Cardiff. Þar unnu til verðlauna þeir Alexander Heiðarsson og Egill Blöndal en Alexander varð í öðru sæti í U21 árs í -55 kg flokki og Egill í þriðja sæti í -90 kg flokki seniora. Þeir Árni Lund U21 -81 kg, Logi Haraldsson -81 kg seniora og Ægir Valsson í -90 kg flokki seniora kepptu allir um bronsverðlaun en urðu að lúta í lægra haldi en þeir Oddur Kjartansson í U21 -73 kg flokki og Dofri Bragason í -60 kg flokki seniora komust ekki eins langt. Fyrir hádegi var keppt í aldursflokki U21 árs. Í flokknum hans Alexanders voru þrír keppendur og vann hann fyrri viðureign sína en tapar þeirri síðari. Oddur tapar fyrstu viðureign en fær uppreisnar glímu og vinnur hana en tapar svo þeirri þriðju og er þar með úr leik. Í flokknum hans Árna voru sextán keppendur og tapaði hann fyrstu viðureign en vann næstu þrjár og fimmtu viðureign, bronsviðureigninni tapaði hann eins og áður sagði en þá var hún komin í gullskor. Seniorar kepptu eftir hádegið, Dofri Bragason fékk tvær viðureignir og tapaði þeim báðum. Í flokknum hans Loga voru sextán keppendur og komst hann í undanúrslit með því að vinna fyrstu tvær en í undanúrslitum tapar hann og keppti því um bronsverðlaunin. Í 90 kg flokknum voru sextán keppendur og tapaði Ægir fyrstu viðureign en vinnur næstu og einnig þá þriðju þar sem mótherji hans mætti ekki og tapar svo bronsglímunni. Það sama gerði Egill í 90 kg flokknum hann tapar fyrstu, vinnur næstu og þriðju þar sem eins og hjá Ægi mótherji Egils mætti ekki og þar með var Egill kominn í bronsviðureignina sem hann vann örugglega. Til hamingu Alexander og Egill, þetta var vel gert. Að sjálfsögðu óskum við öðrum keppendum einnig til hamingju með árangurinn og þjálfurum með vel heppnaða ferð þvi það vantaði bara herslumuninn að bronsin hefðu orðið þrjú í viðbót.
Úrslit Haustmóts yngri 2017
Haustmóti JSÍ í yngri aldursflokkum (U21/U18/U15/U13) var haldið í Grindavík laugardaginn 21. okt. sl. Keppendur okkar JR inga núna voru mun færri en í fyrra eða aðeins þrír og voru það þeir Hákon, Kjartan og Skarphéðinn sem kepptu í ár og stóðu sig frábærlega og unnu allir gullverðlaun. Þeir Árni Lund og Oddur Kjartans voru fjarri góðu gamni því þeir tóku þátt í öðru móti í Cardiff sama dag og aðrir sem ætluðu að keppa forfölluðust á síðustu stundu. Þátttakendur núna voru fleiri en í fyrra eða fimmtíu og einn sem er ánægjulegt og mótið var vel skipulagt hjá UMFG en það hófst kl. 11 og því lauk kl. 14:30. Af sextíu og sjö glímum unnust fimmtíu og fjórar þeirra á ippon. Að þessu sinni var það Judodeild Selfoss sem flest gullin vann og óskum við þeim til hamingju með það en hér eru úrslitin og nokkrar myndir frá mótinu.
Keppa í Cardiff um helgina
Í morgun lögðu sjö keppendur af stað til Cardiff í Englandi og munu þeir keppa næsta laugardag á Welsh Open Junior & Senior Championships 2017. Þeir sem fóru eru, Alexander Heiðarsson -55 kg, Oddur Kjartansson -73kg og Árni Lund -81 kg og keppa þeir allir í U21 árs eða juniora flokkum og aðrir sem fóru keppa í seniora flokkum en það eru þeir Dofri Bragason -60 kg, Logi Haraldsson -81 kg og Egill Blöndal og Ægir Valsson í -90kg flokki. Með þeim í för eru landsliðsþjálfarar U21 og seniora þeir Hermann Unarsson og Jón Þór Þórarinsson.
Haustmót JSÍ – U13/U15/U18 og U21 árs.
Haustmót JSÍ í yngri aldursflokkum þ.e. U21/U18/U15/U13 verður haldið í íþróttahúsinu Röstinni í Grindavík laugardaginn 21. okt. næstkomandi.
Fimmtíu og fimm keppendur eru skráðir til leiks og hefst mótið kl. 11:00 í aldursflokkum U13 og U15 og lýkur þeim flokkum um kl. 13. Þá hefst keppni í aldursflokkum U18 og U21 árs og ætti henni að ljúka um kl. 14:30. Vigtun fyrir U13 og U15 er frá 9:30-10:00 og geta U18 og U21 líka vigtað sig þá en annars er þeirra vigtun frá 11-11:30. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá haustmótinu 2016.
Keppendalistinn 2017.
Hugo með silfur í París
Klúbburinn hans Hugo varð í öðru sæti á Franska meistaramótinu í sveitakeppni sem haldið var í dag í París. Til hamingju með silfrið Hugo, vel gert.
Hugo keppir á morgun
Félagi okkar Hugo Lorain keppir á morgun 14. okt. í París með klúbbnum sínum á Franska meistaramótinu í sveitakeppni. Þeir keppa í annari deild að þessu sinni þar sem þeir gátu ekki tekið þátt í undankeppni fyrir fyrstu deild þar sem nokkrir keppenda þeirra, þar á meðal Hugo voru meiddir. Síðast þegar þeir kepptu í annari deild urðu þeir í þriðja sæti. Búist er við þátttöku um þrjátíu liða allsstaðar af landinu. Hér eru nokkra myndir af Hugo og liðsfélögum hans frá mótinu 2016.
Tóku gulabeltið
Úr byrjendahóp fullorðinna sem byrjaði í september voru tveir aðilar sem fóru í beltapróf í gær og voru það þau Judy Yum Fong og Matthías Pétursson en þau og tóku gula beltið og stóðu sig með glæsibrag.
Æfingahelgi 14-17 ára á Akureyri 11-12 nóv.
Helgina 11 til 12 nóvember verður landsliðsæfingahelgi fyrir cadets (15-17 ára) haldin hér á Akureyri. Tvær æfingar á laugardegi fyrri 10-12 og seinni 14:30-16:30. Ein æfing á sunnudegi frá 9:30 – 10-45. Sjá nánar á heimasíðu JSÍ
Júdósamband Íslands hlýtur styrk úr Afrekssjóði ÍSÍ
Júdósamband Íslands (JSÍ) hefur hlotið viðbótarstyrkveitingu úr Afrekssjóði ÍSÍ vegna landsliðsverkefna ársins 2017. Sjá nánar á heimasíðu JSÍ.
Æfa í Róm
JR- ingarnir Ægir Valsson, Logi Haraldsson og Árni Lund héldu af stað í gær til Rómar og þar munu þeir taka þátt í OTC æfingabúðum frá 9-13 október. OTC æfingabúðirnar eru á vegum Evrópu júdó sambandsins og eru átta slíkar haldnar á ári hverju víðsvegar um Evrópu. Á þær koma ekki bara topp keppendur frá Evrópu heldur einnig flestir bestu judomenn heims frá öðrum heimsálfum svo þeir félagar fá frábært tækifæri á því að glíma við og læra af þeim bestu. Hér er eru upplýsingar um verkefnið OTC “GOING FOR GOLD” sem sett var af stað árið 2010.