Afmælismót JSÍ úrslit U13/U15 og U21

Afmælismót JSÍ 2026 í aldursflokkum U13, U15 og U21 árs fór fram laugardaginn 14. febrúar hjá Judodeild Ármanns. Þátttakendur voru frá átta klúbbum, sextíu keppendur í U13/U15 og tuttugu og einn U21 árs aldursflokki. Frá JR voru þátttakendur tuttugu og fimm og unnu þeir alls fjórtán gullverðlaun, fjögur silfur og sex bronsverðlaun. Mótið var skemmtilegt og gekk vel fyrir sig, það hófst kl. 12 og lauk um kl. 16. Fullt af flottum og spennandi viðureignum sem enduðu oft með frábærum ippon köstum. Dómarar voru þeir Björn Sigurðarson, Gunnar Jóhannesson, Kolmar Jónsson og Yoshihiko Iura. Hér neðar eru myndir frá mótinu og verðlaunahöfum, úrslitin og videoklippa.