Aðalsteinn í níunda sæti í Portúgal

Þá er keppni lokið á Portimao Junior European Cup í Portugal. Helena Bjarnadóttir sem keppti í -70 kg flokki tapaði fyrstu glímu eftir hörku keppni en fékk því miður ekki uppreisn og var þar með úr leik. Aðalsteinn Björnsson keppti í -90 kg flokki og glímdi alls þrjár glímur og endaði í níunda sæti. Hann mætti fyrst heimamanni og fór viðureign þeirra í gullskor og sigraði Alli að lokum með glæsilegu ippon kasti. Næst mætti hann keppanda frá Ísrael sem sigraði -90 kg flokkin í lok dags. Þeir glíma fullan glímutíma og Alli tapar á wazaari. Hann var þó ekki langt frá því að sigra því á einum tímapunkti komst hann inn ótrúlega vel útfærðan armlás og var það alveg með ólíkindum að Ísraelinn skyldi sleppa úr honum en það var vel gert. Alli fékk uppreisnarglímu og mætti næst keppanda frá Ítalíu og varð Alli að lokum að játa sig sigraðan. Hér eru úrslitin og stutt videoklippa af glímunum hans Alla.