Afmælismót JSÍ 2026 – U13/U15 og U21 árs

Afmælismót JSÍ 2026 í aldursflokkum U13, U15 og U21 árs fer fram laugardaginn 14. febrúar hjá Judodeild Ármanns Engjavegi 7 og hefst það kl 12:00 hjá aldursflokkum U13 og U15 og ætluð mótslok hjá þeim kl. 13:30 og hefst þá keppni í U21 árs aldursflokki og mótslok um kl. 15:00. Vigtun fer fram á keppnisstað föstudaginn 13. feb. frá 18-18:30 og á keppnisdegi frá kl. 10:30 – 11:00. Nánari upplýsingar hér.