Eyjólfur keppti í morgun og glímdi við Ken Kennes geysisterkan júdómann frá Belgíu. Því miður var varð Eyjólfur að láta í minni pokann fyrir honum en Ken þessi á flotttan feril, var meðal annars í öðru og þriðja sæti 2011 á EC U20. Ken tapaði þar næstu viðureign svo Eyjólfur fékk ekki uppreisn. Þormóður keppir á morgun og mætir Roy Meyer frá Hollandi en hann er í öðru sæti á Evrópulistanum í þungavigt og vann meðal annars Opna Breska 2011 svo Þormóður hefði getað verið lánsamari með dráttinn en við spyrjum að leikslokum.
Eyjólfur úr leik
12. maí, 2012 (15:08), höfundur: Bjarni
EM Sveitakeppnin
29. apríl, 2012 (10:50), höfundur: Bjarni
Evrópumeistaramótið heldur áfram í dag með sveitakeppni en keppni einstaklinga er lokið. Fylgist með bestu júdómönnum í heimi á Judo TV.
Munið að nota Internet Explorer þar sem Firefox vafrinn virkar ekki. Hér neðar er mynd af goðsögnini Skotanum George Kerr 10. Dan (t.h.) í viðtali hjá Sheldon Franco-Rooks.
EM úrslit
29. apríl, 2012 (10:27), höfundur: Bjarni
Þá er keppni Þormóðs lokið á EM. Því miður komst hann ekki áfram en hann tapaði fyrir Verbij Luuk með fjórum shido. Þormóður fór full rólega af stað og uppskar fljótlega tvö shido en hann sótti í sig veðrið og komst inní glímuna en Luuk Lesa meira →
Þormóður á EM
26. apríl, 2012 (18:55), höfundur: Bjarni
Evrópumeistaramótið 2012 hófst í dag. Að þessu sinni er það haldið í Chelyabinsk í Rússlandi. Þungavigtin verður á laugardaginn og mætir Þormóður Jónsson, Hollendingnum Verbij Luuk en hann er í 24. sæti heimslistans en samt búinn að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum. Þormóður er í 55. sæti heimslistans og eins og staðan er í dag er hann inni á Ólympíuleikunum Lesa meira →
Úrslit VM U20 ára
26. apríl, 2012 (15:03), höfundur: Bjarni
Hér neðar eru úrslitin frá Vormóti JSÍ yngri en 20 ára.
Aldursflokkur U13/U15
Aldursflokkur U17/U20
Í “lesa meira” er nokkrar myndir frá mótinu
Lesa meira →
Úrslit Páskamótsins
16. apríl, 2012 (16:24), höfundur: Bjarni
Páskamót JR og Góu var haldið sl. helgi og var þátttakan var vægast sagt frábær og hefur aldrei verið meiri sem varð til þess að það tók lengri tíma en ráðgert hafði verið að koma mótinu af stað.
Þegar það svo hófst gekk það hratt fyrir sig og margar flottar viðureignir litu dagsins ljós. Hér neðar eru úrslitin og nokkrar myndir frá mótinu.

Hér eru úrslit Páskamótsins 2012
Í lesa meira eru nokkrar myndir frá mótinu. Lesa meira →
Úrslit ÍM U15 og U13
5. apríl, 2012 (23:55), höfundur: Bjarni
Hér eru úrslit Íslandsmóts yngri en 15 ára sem haldið var á Akureyri 31. mars s.l.
Hér eru úrslitin í einstaklinskeppninni.
Riðill Sveitakeppnin 2012 U15
Öll úrslit Sveitakeppni U15
Riðill Sveitakeppnin 2012 U13
Öll úrslit Sveitakeppni U13
Myndir væntanlegar








