Júdófélag Reykjavíkur

EM úrslit

Þá er keppni Þormóðs lokið á EM. Því miður komst hann ekki áfram en hann tapaði fyrir Verbij Luuk með fjórum shido. Þormóður fór full rólega af stað og uppskar fljótlega tvö shido en hann sótti í sig veðrið og komst inní glímuna en Luuk Lesa meira →

Þormóður á EM

Evrópumeistaramótið 2012 hófst í dag. Að þessu sinni er það haldið í Chelyabinsk í Rússlandi. Þungavigtin verður á laugardaginn og mætir Þormóður Jónsson, Hollendingnum Verbij Luuk en hann er í 24. sæti heimslistans en samt búinn að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum. Þormóður er í 55. sæti heimslistans og eins og staðan er í dag er hann inni á Ólympíuleikunum Lesa meira →

Úrslit VM U20 ára

Hér neðar eru úrslitin frá Vormóti JSÍ yngri en 20 ára.
Aldursflokkur U13/U15
Aldursflokkur U17/U20
Í “lesa meira” er nokkrar myndir frá mótinu
Lesa meira →

Sumardagurinn fyrsti

Á morgun sumardaginn fyrsta falla reglulegar æfingar niður hjá öllum aldursflokkum en æfingar vegna beltaprófa (gult til og með brúnt belti) fyrir 11 ára og eldri verða í stóra salnum frá kl. 11:00 til 13:00 og eru allir velkomnir.

Úrslit Páskamótsins

Páskamót JR og Góu var haldið sl. helgi og var þátttakan var vægast sagt frábær og hefur aldrei verið meiri sem varð til þess að það tók lengri tíma en ráðgert hafði verið að koma mótinu af stað.
Þegar það svo hófst gekk það hratt fyrir sig og margar flottar viðureignir litu dagsins ljós. Hér neðar eru úrslitin og nokkrar myndir frá mótinu.


Hér eru úrslit Páskamótsins 2012

Í lesa meira eru nokkrar myndir frá mótinu. Lesa meira →

Páskamót JR og Góu

Páskamót JR og Góu 2012 verður haldið næsta laugardag og fer að venju fram hjá JR. Keppnin hefst kl. 10:00 hjá  yngsta aldursflokknum 6-10 ára. Vigtun fyrir alla aldursflokka 14 ára og yngri er frá 8:30 til 9:00 og fyrir 15 ára og eldri frá kl. 11:30 til 12:00.
Þeir sem mæta ekki í vigtun á réttum tíma verða afskráðir svo keppnin geti hafist á réttum tíma.

Nánari upplýsingar hér. Páskamót JR og Góu 2012

Vormót JSÍ

Vormót JSÍ allra aldursflokka yngri en 20 ára verður haldið í JR laugardaginn 21. apríl. Keppni fullorðinna (seniora) verður svo haldin viku seinna., 28. apríl hjá Júdódeild Ármanns í Laugardal.
Nánari upplýsingar hér neðar.

Vormót 2012 U13 U15 U17 U20

Vormót 2012 Seniorar

Síðan keyrir á Wordpress. Hönnun og forritun: Henrý Þór Baldursson 2010