Þormóður tapaði fyrstu viðureign sinni gegn Hollendingnum Roy Meyer en hann fékk uppreisn og mætti þá Pólverjanum Damian Nasiadko og vann hann örugglega á ippon en var áður búinn að skora yuko. Þar næst mætti hann öðrum Pólverja, Maciej Sarnacki. Þetta var hörkuglíma og jöfn sem Maciej vann að lokum á refsistigum. Þormóður fékk á sig þrjú refsistig en Maciej tvö en þar að auki hafði Þormóður skorað á hann yuko og var í bullandi sókn þegar tíminn rann út. Maciej Sarnacki endaði í þriðja sæti, Roy Meyer í fimmta sæti og Þormóður í því sjöunda. Úrslit 100 kg Opna Breska 2012
Þormóður í 7. sæti
14. maí, 2012 (17:01), höfundur: Bjarni
Eyjólfur úr leik
12. maí, 2012 (15:08), höfundur: Bjarni
Eyjólfur keppti í morgun og glímdi við Ken Kennes geysisterkan júdómann frá Belgíu. Því miður var varð Eyjólfur að láta í minni pokann fyrir honum en Ken þessi á flotttan feril, var meðal annars í öðru og þriðja sæti 2011 á EC U20. Ken tapaði þar næstu viðureign svo Eyjólfur fékk ekki uppreisn. Þormóður keppir á morgun og mætir Roy Meyer frá Hollandi en hann er í öðru sæti á Evrópulistanum í þungavigt og vann meðal annars Opna Breska 2011 svo Þormóður hefði getað verið lánsamari með dráttinn en við spyrjum að leikslokum.
Opna Breska
10. maí, 2012 (21:06), höfundur: Bjarni
Þormóður Jónsson heldur af stað til London í fyrramálið og mun keppa á Opna Breska um helgina ásamt Eyjólfi Eyfells sem býr og starfar í London. Eyjólfur keppir á laugardag í -73 kg þyngdarflokki og Þormóður keppir á sunnudaginn í +100 kg þyngdarflokki. Mótið er gríða sterkt meira en 400 þátttakendur frá 27 þjóðum. Þátttaka í mótinu er liður í undirbúningi Þormóðs fyrir Ólympíuleikana en að því loknu taka við strangar æfingar og æfingabúðir, keppni á heimsbikarmóti á Spáni og í Portúgal og EC cup í Prag.
Norðurlandamótið
9. maí, 2012 (19:21), höfundur: Bjarni
Norðurlandamótið verður haldið í Lindesberg í Svíþjóð dagana 26-27 maí. Staðsetningin er afar óhentug og vekur furðu þar sem samkomulag hefur verið um það að halda NM hverju sinni sem næst alþjóðlegum flugvöllum þannig að sem minnst þurfi að ferðast og annar ferðakostnaður í lágmarki þegar komið er til gestaþjóðarinnar. Lesa meira →
Þormóður á Ólympíuleikana
9. maí, 2012 (12:03), höfundur: Bjarni
Í dag birti Alþjóða Júdósambandið þátttökulista (Olympic Qualification Lists) þeirra sem náðu að tryggja sér keppnisrétt á Ólymíuleikunum í London í sumar og er Þormóður Jónsson á þeim lista og því ljóst að hann mun keppa fyrir okkar hönd á leikunum. Þetta er því í annað skiptið sem hann keppir á Ólympíuleikum en hann keppti einnig í Peking 2008. Hér er þátttökulistinn í þungavigt á Ólympíuleikunum i London 2012 en þar verða 32 keppendur og er keppt með úrsláttarfyrirkomulagi eins og venjulega en Þormóður komst í þriðju umferð 2008 og var aðeins 40 sekúndum frá því að komast í þá fjórðu og í átta manna úrslit en hann hafði verið yfir í viðureign sinni gegn Rodaki, 160 kg Írana í rúmar fjórar mínútur þegar Rodaki komst í gott færi og skellti Þormóði. Hér er þungavigtin á Ólympíuleikunum i Peking 2008 Íslenskir júdómenn hafa verið þátttakendur á öllum Ólympíleikum síðan 1976 að undanskildum leikunum 200 og 2004 og eru þeir eftirfarandi. Lesa meira →
Nýr heimslisti
1. maí, 2012 (13:11), höfundur: Bjarni
Nýr heimslisti er kominn út og hefur Þormóður Jónsson færst upp um eitt sæti. Listinn yfir þá sem náðu lágmörkum fyrir Ólympíuleikana í sumar er í vinnslu. Bráðabirgða listi verður birtur 5. maí og lokalisti 10. maí og þá fyrst verður ljóst hvort Þormóður verði meðal keppenda á Ólympíuleikunum í London.
EM Sveitakeppnin
29. apríl, 2012 (10:50), höfundur: Bjarni
Evrópumeistaramótið heldur áfram í dag með sveitakeppni en keppni einstaklinga er lokið. Fylgist með bestu júdómönnum í heimi á Judo TV.
Munið að nota Internet Explorer þar sem Firefox vafrinn virkar ekki. Hér neðar er mynd af goðsögnini Skotanum George Kerr 10. Dan (t.h.) í viðtali hjá Sheldon Franco-Rooks.







