Júdófélag Reykjavíkur

Frí 1. maí 10 ára & yngri

Það verður frí hjá 6-10 ára þriðjudaginn 1. maí og næsta æfing því fimmtudaginn 3. mai.
Það verður æfing hjá framhaldi fullorðinna 1. maí á sama tíma og venjulega eða kl. 18:30.

EM Sveitakeppnin

Evrópumeistaramótið heldur áfram í dag með sveitakeppni en keppni einstaklinga er lokið. Fylgist með bestu júdómönnum í heimi á Judo TV.
Munið að nota Internet Explorer þar sem Firefox vafrinn virkar ekki. Hér neðar er mynd af goðsögnini Skotanum George Kerr 10. Dan (t.h.) í viðtali  hjá Sheldon Franco-Rooks.

EM úrslit

Þá er keppni Þormóðs lokið á EM. Því miður komst hann ekki áfram en hann tapaði fyrir Verbij Luuk með fjórum shido. Þormóður fór full rólega af stað og uppskar fljótlega tvö shido en hann sótti í sig veðrið og komst inní glímuna en Luuk Lesa meira →

Þormóður á EM

Evrópumeistaramótið 2012 hófst í dag. Að þessu sinni er það haldið í Chelyabinsk í Rússlandi. Þungavigtin verður á laugardaginn og mætir Þormóður Jónsson, Hollendingnum Verbij Luuk en hann er í 24. sæti heimslistans en samt búinn að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum. Þormóður er í 55. sæti heimslistans og eins og staðan er í dag er hann inni á Ólympíuleikunum Lesa meira →

Vormóti aflýst

Vormóti seniora sem vera átti um næstu helgi hefur verið aflýst sökum lítillar þátttöku.

Úrslit VM U20 ára

Hér neðar eru úrslitin frá Vormóti JSÍ yngri en 20 ára.
Aldursflokkur U13/U15
Aldursflokkur U17/U20
Í “lesa meira” er nokkrar myndir frá mótinu
Lesa meira →

Vigtun á Vormóti

Vormót JSÍ allra aldursflokka yngri en 20 ára verður haldið í JR á morgun laugardaginn 21. apríl.
Vigtun í fyrramálið sjá nánari upplýsingar í skjalinu hér neðar.
Ef ekki er mætt í  vigtun á réttum tima verða menn afskráðir úr keppninni.

Vormót 2012 U13 U15 U17 U20

Síðan keyrir á Wordpress. Hönnun og forritun: Henrý Þór Baldursson 2010