Júdófélag Reykjavíkur

Heimsmeistaramótið 2010

Núna eru allir Íslendingarnir komnir til Tókýó þar sem heimsmeistaramótið í júdó 2010 fer fram dagana 9. til 13. september. Keppendur íslenska liðsins eru Þormóður Jónsson í +100 kg og opnum flokki, Hermann Unnarsson í -81 kg, Kristján Jónsson í -73 kg og Eyjólfur Eyfells sem einnig er í -73 kg. Þjálfari ferðarinnar er Bjarni Friðriksson.
Í morgun var dregið í alla flokka nema opin flokk og eru andstæðingar íslenska liðsins eftirfarandi:
Þórmóður Jónsson keppir, fyrstur Íslendinga, fimmtudaginn 9. sept. í +100 kg og eru 49 keppendur í þeim flokki. Þómóður verður að teljast frekar óheppinn með drátt því fyrsta viðureign hans er á móti Abdullo Tangriev frá Uzbekistan. Þórmóður hefur áður mætt Abdullo, á heimsmeistaramótinu í Rotterdam 2009, og varð hann að játa sig sigraðan eftir 3. mínútu glímu. Einnig má geta að Abdullo hreppti silfrið á ólympíuleikunum í Peking 2008.

Hér má sjá glímu Þormóðs við Abdullo á HM 2009

Hermann Unnarsson keppir föstudaginn 10. sept. í -81 kg og eru 80 keppendur í þeim flokki. Fyrsta glíma Hermans er á móti Waleed Hanfi (31 árs) frá Qatar. Waleed er ekki mikið þekktur júdómaður og má segja að Hermann sé heppin með drátt.

Hægt er að sjá 2 video af glímum Waleeds hér að neðan.
Grand Prix Hamborg 2009
Grand slam Paris 2009

Kristján Jónsson keppir laugardaginn 11. sept. Í -73 kg og eru 83 keppendur í þeim flokki. Fyrsta glíma Kristjáns er á móti Samuela Mateiyalona frá Fiji og verður hann að teljast heppin að fá Judoka frá Eyjaálfunum í fyrstu glímu.

Eyjólfur Eyfells keppir einnig laugardaginn 11. sept í -73 kg en hann situr hjá í fyrstu viðureign. Hann fær annað hvort kínverjann Yiao Jia eða egyptan Hussein Hafiz.

Við óskum strákunum góðs gengis og vonum að þeir geris sitt besta.

Hægt er að fylgjast með mótinu og skoða alla flokka á eftirfrandi vefsíðu:
http://ippon.org/

Síðan keyrir á Wordpress. Hönnun og forritun: Henrý Þór Baldursson 2010