Tommy Mortensen fyrrum landsliðsmaður Dana og landsliðsþjálfari er væntanlegur á æfingu í JR mánudaginn 6. september. Tommy sem keppti í -66 kg flokki var einn allrabesti júdómaður norðurlanda hér á árum áður og keppti meðal annars á Ólympíuleikunum í Seoul 1988 og hafnaði í 11 sæti. Hann starfar núna sem júdókennari hjá boseihojskole og er hér á landi meðal annars til að kynna skólann.
Æfingabúðir
3. september, 2010 (12:56 eh.), höfundur: Bjarni
Glímusamband Íslands býður okkur að taka þátt í æfingabúðum um helgina í Back-hold og Gouren sem er ekki ósvipað júdó. Nánari upplýsingar á tenglinum: Æfingabúðir í Back-Hold og Gouren.
Júdófélag Reykjavíkur, Ármúla 17a, 108 Reykjavík. jr@judo.is sími 588 3200 og 662 8055
Síðan keyrir á Wordpress. Hönnun og forritun: Henrý Þór Baldursson 2010




