Júdófélag Reykjavíkur

Heimsmeistaramótið 2010

Núna eru allir Íslendingarnir komnir til Tókýó þar sem heimsmeistaramótið í júdó 2010 fer fram dagana 9. til 13. september. Keppendur íslenska liðsins eru Þormóður Jónsson í +100 kg og opnum flokki, Hermann Unnarsson í -81 kg, Kristján Jónsson í -73 kg og Eyjólfur Eyfells sem einnig er í -73 kg. Þjálfari ferðarinnar er Bjarni Friðriksson.
Í morgun var dregið í alla flokka nema opin flokk og eru andstæðingar íslenska liðsins eftirfarandi:
Þórmóður Jónsson keppir, fyrstur Íslendinga, fimmtudaginn 9. sept. í +100 kg og eru 49 keppendur í þeim flokki. Þómóður verður að teljast frekar óheppinn með drátt því fyrsta viðureign hans er á móti Abdullo Tangriev frá Uzbekistan. Þórmóður hefur áður mætt Abdullo, á heimsmeistaramótinu í Rotterdam 2009, og varð hann að játa sig sigraðan eftir 3. mínútu glímu. Einnig má geta að Abdullo hreppti silfrið á ólympíuleikunum í Peking 2008.

Hér má sjá glímu Þormóðs við Abdullo á HM 2009

Hermann Unnarsson keppir föstudaginn 10. sept. í -81 kg og eru 80 keppendur í þeim flokki. Fyrsta glíma Hermans er á móti Waleed Hanfi (31 árs) frá Qatar. Waleed er ekki mikið þekktur júdómaður og má segja að Hermann sé heppin með drátt.

Hægt er að sjá 2 video af glímum Waleeds hér að neðan.
Grand Prix Hamborg 2009
Grand slam Paris 2009

Kristján Jónsson keppir laugardaginn 11. sept. Í -73 kg og eru 83 keppendur í þeim flokki. Fyrsta glíma Kristjáns er á móti Samuela Mateiyalona frá Fiji og verður hann að teljast heppin að fá Judoka frá Eyjaálfunum í fyrstu glímu.

Eyjólfur Eyfells keppir einnig laugardaginn 11. sept í -73 kg en hann situr hjá í fyrstu viðureign. Hann fær annað hvort kínverjann Yiao Jia eða egyptan Hussein Hafiz.

Við óskum strákunum góðs gengis og vonum að þeir geris sitt besta.

Hægt er að fylgjast með mótinu og skoða alla flokka á eftirfrandi vefsíðu:
http://ippon.org/

Tommy Mortensen

Tommy Mortensen fyrrum landsliðsmaður Dana og landsliðsþjálfari er væntanlegur á æfingu í JR mánudaginn 6. september. Tommy sem keppti í -66 kg flokki var einn allrabesti júdómaður norðurlanda hér á árum áður og keppti meðal annars á Ólympíuleikunum í Seoul 1988 og hafnaði í 11 sæti. Hann starfar núna sem júdókennari hjá boseihojskole og er hér á landi meðal annars til að kynna skólann.

Kim Christiansen og Tommy Mortensen

Æfingabúðir

Glímusamband Íslands býður okkur að taka þátt í æfingabúðum um helgina í Back-hold og Gouren sem er ekki ósvipað júdó. Nánari upplýsingar á tenglinum:  Æfingabúðir í Back-Hold og Gouren.

HM í Tokyo

Dagana 9. til 14. september nk. verður heimsmeistaramótið haldið í Tokyo. Þangað fara fjórir keppendur frá Íslandi og keppa í fimm þyngdarflokkum. Þeir sem fara eru Þormóður Jónsson +100 kg og opnum flokki, Hermann Unnarsson -81 kg, og Kristján Jónsson og Eyjólfur Eyfells í -73 kg. Hægt verður að fylgjast með í beinni útsendingu frá mótinu á Judo TV og einnig verður hægt að fylgjast með hvernig útslátturinn gengur fyrir sig. Hér er tengill á heimasíðu mótsins. Hér neðar eru nokkrar myndir af þeim á þrek og tækniæfingu.

Glæný vefsíða

Góðan dag.

Þá er loksins komið að því að opna nýja vefsíðu. Síðan er enn í vinnslu svo ef menn vilja koma með ábendingar um eitthvað sem vantar eða betur mætti fara þá vinsamlegast sendið línu á jr@judo.is.

Síðan keyrir á Wordpress. Hönnun og forritun: Henrý Þór Baldursson 2010