Júdófélag Reykjavíkur

Úrslit Góumótsins

Það var frábær þátttaka á Góu móti JR i dag og sjaldan ef nokkurn tíman hefur jafn fjölmennur og flottur hópur svona ungra júdóiðkenda (6-10 ára) verið samankominn til að reyna sig við félaga sína úr öðrum klúbbum. Keppendurnir sem voru um sextíu og komu frá átta klúbbum sýndu oft á tíðum glæsilegt júdó með flottri tækni og snerpu. Þeir voru í alla staði til fyrirmyndar bæði utan vallar sem innan. Þessi mikla þátttaka sýndi að það er mikið og vel unnið í barnastarfinu hjá öllum klúbbum landsins og ljóst að með svona efnivið eins og sást til í dag og með sama áframhaldi er framtíðin björt í júdóíþróttinni á Íslandi.
Hér eru úrslitin:  Úrslit í 6-8 ára og Úrslit í 9-10 ára Hér neðar eru myndir frá mótinu. Lesa meira →

Síðan keyrir á Wordpress. Hönnun og forritun: Henrý Þór Baldursson 2010