Það var frábær þátttaka á Góu móti JR i dag og sjaldan ef nokkurn tíman hefur jafn fjölmennur og flottur hópur svona ungra júdóiðkenda (6-10 ára) verið samankominn til að reyna sig við félaga sína úr öðrum klúbbum. Keppendurnir sem voru um sextíu og komu frá átta klúbbum sýndu oft á tíðum glæsilegt júdó með flottri tækni og snerpu. Þeir voru í alla staði til fyrirmyndar bæði utan vallar sem innan. Þessi mikla þátttaka sýndi að það er mikið og vel unnið í barnastarfinu hjá öllum klúbbum landsins og ljóst að með svona efnivið eins og sást til í dag og með sama áframhaldi er framtíðin björt í júdóíþróttinni á Íslandi.
Hér eru úrslitin: Úrslit í 6-8 ára og Úrslit í 9-10 ára Hér neðar eru myndir frá mótinu. Lesa meira →
Úrslit Góumótsins
18. febrúar, 2012 (20:38), höfundur: Bjarni
Góu mótið 2012
16. febrúar, 2012 (23:17), höfundur: Bjarni
Góumót JR verður haldið laugardaginn 18. feb. þ.e. næsta laugardag hjá JR í Ármúla 17.
Þetta er mót fyrir aldursflokkinn 10 ára og yngri og hefst það kl. 10:00 og ætti að ljúka um kl. 12:30. Það má búast við nokkuð fjölmennu móti þar sem að það er opið öllum öðrum júdóklúbbum.
Húsið opnar kl. 9. Mæting í síðasta lagi kl. 9:30
Krakkarnir verða vigtaðir á æfingu fimmtudaginn 16. feb. en þeir sem mæta ekki þá verða vigtaðir á milli kl. 9 og 9:30 á laugardag.
Úrslit Kyu mótsins
12. febrúar, 2012 (14:04), höfundur: Bjarni
Fyrra KYU mót ársins var haldið um helgina hjá Júdódeild ÍR og eru úrslitin hér.
KYU mótið
9. febrúar, 2012 (23:13), höfundur: Bjarni
Dagskrá KYU móts I. 2012 sem haldið verður hjá Júdódeild ÍR í Breiðholtinu næsta Laugardag er eftirfarandi.
Frá kl. 10:00 -12:00 verður keppni í aldursflokkum 11-12 ára og 13-14ára
(Vera mætt ekki seinna en 9:15.)
Keppni í öðrum aldursflokkum hefst strax að lokinni keppni 11-14 ára eða um kl. 12:00 og mótslok í síðasta lagi kl. 14:00. (Vera mætt kl. 11 í síðasta lagi ef mótið gengur hratt fyrir sig.)
Langur laugardagur
7. febrúar, 2012 (16:19), höfundur: Bjarni
Langur laugardagur hjá JR.
Næst komandi laugardag, þann 11. febrúar verður haldin júdóæfing og kvöldvaka fyrir yngstu iðkendurna þ.e. tíu ára og yngri. Áætlað er að byrja æfinguna klukkan 15:00 því gott að mæta fyrir þann tíma til að koma tímanlega á línu. Við munum breyta út af vananum og fá til okkar reynslumikla gestakennara. Að loknum æfingum, sturtu og gufu bíður JR upp á veitingar og sprell.
Hittumst hress á laugardaginn með nesti yfir daginn, handklæði, júdógallann og að sjálfsögðu góða skapið. Foreldrar eru að sjálfsögðu boðnir velkomnir á kvöldvökuna sem byrjar c.a. 19:00 og lýkur klukkan 21:00.





