Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Æfingar hefjast aftur samkvæmt stundaskrá mánudaginn 2. janúar 2012 og ný námskeið viku síðar.
31. desember, 2011 (13:21), höfundur: Bjarni
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Æfingar hefjast aftur samkvæmt stundaskrá mánudaginn 2. janúar 2012 og ný námskeið viku síðar.
27. desember, 2011 (16:17), höfundur: Bjarni
24. desember, 2011 (18:41), höfundur: Bjarni
10. desember, 2011 (17:35), höfundur: Bjarni
Kolbeinn Gíslason og Þórir Rúnarsson taka þátt í dómara þjálfunnar námskeiði sem haldið er í Helsinki nú um helgina en það er Finnska júdósambandið sem stendur fyrir því. Þjálfari er Franky de Moor stjórnarmaður í dómaranefnd EJU (Evrópu júdósambandið).
6. desember, 2011 (23:54), höfundur: Bjarni
6. desember, 2011 (23:26), höfundur: Bjarni
Jólamót JR verður haldið fimmtudaginn 15. des. og hefst kl. 17:30. Mæting kl. 17:00. Sú breyting verður á að 10 ára og yngri og 11 til 14 ára keppa á sama degi og á sama tíma. Að loknu móti verður jólagleði með kaffi/gosi og piparkökum. Mótið er jafnframt síðasta æfing fyrir jól hjá þessum aldursflokkum. Æfingar hefjast aftur 10. jan. hjá 10 ára og yngri og 9. jan. hjá 11-14 ára. Gráðun hjá 10 ára og yngri verður 8. des. á æfingu og hjá 11- 14 ára á æfingu 9. des.
5. desember, 2011 (01:02), höfundur: Bjarni

JR vann tvöfalt í Sveitakeppni Júdósambands Íslands sem haldin var um helgina þegar það vann bæði karla og kvennasveitirnar. Það voru fimm sveitir skráðar til keppni í karlaflokki en því miður forfallaðist sveit KA á síðustu stundu. Í hverri sveit eru fimm keppendur í mismunandi þyngdarflokkum. Þyngdarflokkar karla eru -66kg, -73kg,-81kg -90kg og +90kg og þyngdarflokkar kvenna eru -52kg, -57kg, -63kg, -70kg og +70kg. Keppt er með riðla fyrirkomulagi þannig að allir keppa við alla. Lesa meira →