Júdófélag Reykjavíkur

Gull á Hilleröd

Það var frábær árangur hjá íslensku keppendunum í Hilleröd um helgina. Þeir unnu fern gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og þrenn bronsverðlaun og verðlaunin hefðu örugglega orðið fleiri ef aldursflokkaskiptingin hefði verið sanngjarnari en keppt var meðal annars í aldursflokki 13-16 ára sem er alltof mikill aldursmunur. Einnig var það afar ósanngjarnt að í 11-12 ára aldursflokknum var þyngsti flokkurinn +50 kg og þar lentu okkar menn í því að glíma við mikið þyngri andstæðinga sem voru allt að 70 kg eins og t.d. Sævar Bjarnason sem var aðeins 52 kg. Þrátt fyrir þennan aldurs og þyngdarmun glímdu okkar menn ákaflega vel og unnu margar viðureignir þrátt fyrir að vera allt að þremur árum yngri og mikið léttari. Þeir Jón Hákon Þórsson, Sigurður Teitur Tannason og Þórarinn Rúnarsson sem kepptu í aldursflokkum 10 ára og yngri en í mismunandi þyngdarflokkum byrjuðu daginn á því að gjörsigra sína flokka. Þeir unnu alla sína andstæðinga örugglega á ippon og innbyrtu fyrstu verðlaunin, þrjú gullverðlaun fyrir hádegi. Ásþór Rúnarsson fékk silfur í +50kg flokknum en hann glímdi til úrslita við félaga sinn frá Selfossi Úlf Böðvarsson og hafði Úlfur betur að þessu sinni og vann gulverðlaunin en áður höfðu þeir slegið út sjö keppendur bæði frá Danmörku og Svíþjóð. Roman Rumba fékk bronsverðlaunin í -73kg flokki U17 og Ingi Þór fekk silfur í -73kg U21 árs. Í flokknum voru átta keppendur í tveimur riðlum og var Ingi búinn að vinna sinn riðil örugglega og þar á meðal  Danmerkurmeistarann. Í úrslitunum var Ingi Þór klárlega betri aðilinn og stjórnaði glímunni en því miður um miðbik hennar í einni sókninni tognar hann illa í kálfa og var bara hálfur maður það sem eftir lifði. Þrátt fyrir það náði andstæðinur hans ekki að skora á hann og báðir voru komnir með eitt refsistig. Glíman fer í gullskor og fær Ingi á sig annað refsistig sökum sóknarleysis og tapar með minnsta mun. Egill Blöndal frá Selfossi sem keppti í U17 -81kg og  Gísli Haraldsson frá ÍR í U21 -73kg áttu einnig frábærar glímur og unnu bronsverðlaunin í sínum flokkum.

Skildu eftir svar

Tölvupóstfangið þitt verður ekki birt

*

Þú mátt nota þetta HTML: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Síðan keyrir á Wordpress. Hönnun og forritun: Henrý Þór Baldursson 2010