Júdófélag Reykjavíkur

Féll úr keppni

Þormóður Jónsson keppti um helgina á Grand Prix í Amsterdam og féll úr keppni í fyrstu umferð þegar hann mætti Marius Paskevicius frá Litháen, en hann er í 18. sæti á heimslistanum en Þormóður er í 53. sæti. Viðureign þeirra var nokkuð jöfn og börðust menn grimmt um tökin og fengu báðir shido fyrir sóknarleysi. Ef eitthvað var þá sótti Þormóður meira og átti góða sókn (kosoto-gake) þar sem Paskevicius rétt slapp. Þormóður gerði síðan mistök þegar um 2 mín voru eftir þegar hann fór í fórnarbragð (Sumi-gashi) en þá greip Paskevicius í fótinn á honum og náði að stýra Þormóði á bakið. Þó svo að Paskevicius hafi unnið næstu þrjár viðureignir og komist alla leið í úrslitin fékk Þormóður enga uppreisnarglímu þar sem reglurnar á Grand Prix eru aðrar en á flestum öðrum mótum. Paskevicius keppti til úrslita gegn tvöföldum silfurhafa frá heimsmeistaramótum Andreas Toelzer frá Þýskalandi og hafði Andreas betur. Hér er umfjöllun á mbl.is

Skildu eftir svar

Tölvupóstfangið þitt verður ekki birt

*

Þú mátt nota þetta HTML: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Síðan keyrir á Wordpress. Hönnun og forritun: Henrý Þór Baldursson 2010