Júdófélag Reykjavíkur

Þormóður með Silfur

Þormóður Jónsson varð í öðru sæti á Heimsbikarmótinu á Apia á Samoa eyjum í gær í +100 kg flokknum.  Á leið í úrslitin sló hann út menn sem allir voru ofar á heimslistanum en hann. Hann vann þrjár glímur og allar öruglega og í úrslitaglímunnni gegn Sherrington frá Bretlandi leiddi Þormóður glímuna nánast allan tímann og var yfir þar til alveg í lokin að Þormóður uggði ekki að sér þegar hann tók yfir axlir bretans þá skaust hann í mjög vel útfært Ogoshi og skoraði ippon. Áður hafði Þormóður lagt af velli keppendur frá Líbanon, Mongólíu og Argentínu. Þessi árangur Þormóðs færði hann upp í 53 sæti heimslistans og mun ofar á sérstökum Evrópulista en þar komast 25 stigahæstu (11 konur og 14 karlar í öllum flokkum) á Ólympíuleikana. Til hamingju Móði.  Hér má sjá úrslitin.

Skildu eftir svar

Tölvupóstfangið þitt verður ekki birt

*

Þú mátt nota þetta HTML: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Síðan keyrir á Wordpress. Hönnun og forritun: Henrý Þór Baldursson 2010