Þórir Rúnarsson dæmdi nú um helgina á SWOP í Boros. Þetta var mjög sterkt mót og voru keppendur tæplega 380 manns og hefur því fjölgað um 70 manns frá því í fyrra en því miður áttum við engan fulltrúa (keppanda) á mótinu í ár fyrir utan Þóri sem dæmdi fjöldan allan af glímum bæði í undankeppninni sem og nokkrar viðureignir um verðlaunasæti. Það er alveg frábært hvað hann er virkur og duglegur að sækja sterk mót um allan heim og afla sér meiri reynslu sem skilar sér svo beint til okkar hér á klakanum í betri dómgæslu. Áfram Þórir.
Dæmdi á SWOP
31. október, 2010 (20:39), höfundur: Bjarni
Júdó á Stöð2 sport
29. október, 2010 (22:34), höfundur: Bjarni
Á morgun Laugardag kl. 12.30 verður á Stöð 2 sport meðal annars umfjöllun um júdó í þættinum Á vellinum – íþróttaþáttur fyrir ungt fólk sem er nýr og mjög athyglisverður þáttur. Ekki missa af honum.
Breyting á mótaskrá
27. október, 2010 (11:32), höfundur: Bjarni
Breytt dagsetning verður á Reykjavíkurmótinu og Kyu mótinu ásamt dómaranámskeiðinu sem haldið er samhliða því en staðsetning verður sú sama.
Dómaranámskeiðið sem vera átti 5. nóv. verður 12. nóv. á Akureyri
Kyu mótið sem vera átti 6. og 7 .nóv. verður 13. og 14. nóv. á Akureyri
Reykjavíkurmótið sem vera átti 13. nóv. verður miðvikudagskvöldið 10. nóv. og haldið hjá Júdódeild Ármanns.
Nánari upplýsingar koma svo fram í tilkynningu sem send verður á klúbbana.
Kata æfingar
26. október, 2010 (15:15), höfundur: Bjarni
Kata-Æfingar að hefjast að nýju
Fimmtudaginn 28 október hefjast Kata æfingar að nýju í Skell (æfingasal JDÁ). Æfingatíminn er 20:15-21:15. Þetta eru góðar æfingar sem bæði nýtast þeim sem klára vilja Dan gráður, eða fyrir aðra þá sem fullnuma vilja verða í Júdó. Það eru merkilega margar æfingar sem ekki eru leyfðar í keppni sem fullfáir þekkja. Allir júdómenn og konur eru hvattir/hvattar til að bæta þekkingu sína og taka þátt í fróðlegum og skemmtilegum æfingum. Þjálfarar eru Yoshihiko Iura 7.dan og Björn H. Halldórsson 4.dan. Á áætlun er að æfingarnar verði haldnar eftirtalda daga : 28 okt. – 04.nóv. – 11.nóv. – 18.nóv. – 25.nóv. - 02.des. – 09.des. – 16.des.
Gull í Króatíu
24. október, 2010 (22:20), höfundur: Bjarni
Þormóður með Gull í +100 kg flokki og Hermann í fjórða sæti í -81 kg flokki.
Þormóður Jónsson, Hermann Unnarsson og Ægir Valsson kepptu í dag á XIII Intl. Judo Cup of Dubrovnik sem er alþjóðlegt mót í Króatíu. Á þessu móti sem er mjög sterkt varð Þormóður að láta sér þriðja sætið duga í fyrra en núna vann hann allar sínar viðureignir örugglega og þar með gullverðlaunin.
Fyrsta viðureign Þormóðs var gegn Dejan Vukcevic frá Svartfjallalandi og fór hún í gullskor sem Þormóður vann með bragðinu Uranage og fékk fyrir það Wazaari. Næst mætti hann Vladimir Gajic frá Serbíu og vann hann þá viðureign á Ippon með Kosoto-gari og í úrslitunum mætti hann sigurvegaranum frá síðasta ári, Ibro Miladin frá Bosniu og vann Þormóður hann einnig á Ippon með sama bragði, Kosoto-gari.
Hermann var ekki langt frá því að komast alla leið í úrslitin en er hann tapaði í átta manna útslætti var sá möguleiki úti en hann fékk uppreisnarglímu og vann hana og keppti því um bronsið og tapaði naumlega og endaði því í fjórða sæti. Í fyrstu viðureign mætti hann Perica Nikolic frá Króatíu og vann hann á Ippon, skoraði fyrst wazaari og hélt honum í framhaldi af kastinu. Gegn Goran Music frá Svartfjallalandi í átta manna úrslitum tapaði Hermann þegar honum var hent með bragðinu Harai-goshi. Í uppreisnarglímu mætti hann Antoni Banovac frá Króatíu og vann hann á Ippon með fastataki en Hermann tapaði síðan bronsviðureigninni gegn Milan Burges frá Ungverjalandi sem vann hann á Ippon með drop Seoi nage kasti.
Því miður átti Ægir (-90 kg flokki) ekki góðan dag að þessu sinni og tapaði sínum glímum. Í sinni fyrstu glímu í sextán manna útslætti gegn Milan frá Bosniu, tapaði hann á Ippon þegar hann sótti inn í bragð en var tekinn á mótbragði (Pic up). Þar sem Milan komst áfram fékk Ægir uppreisnarglímu gegn Oskar Jeljenic frá Króatíu en tapaði henni einnig á Ippon þegar honum var hent með Seoi nage.
Þeir félagar hafa dvalið í Tékklandi síðan í haust við æfingar og verða þar fram í desember. Næst keppa þeir á Opna Finnska 6-7 nóv. og síðan viku seinna (13-14 nóv) á Eroupian Cup á Marabella á Spáni.
Komnir í úrslit
24. október, 2010 (13:06), höfundur: Bjarni
Því miður hef ég ekki nákvæmar fréttir við hverja þeir hafa keppt en staðan er svona. Þormóður er kominn í úrslit, var í þriðja sæti í fyrra, Hermann keppir um bronsið , var í sjöunda sæti í fyrra en því miður tapaði Ægir fyrstu og uppreisnarglímunni en hann hefur minnstu keppnisreynslu þeirra félaga. Þormóður og Hemmi halda áfram keppni um kl. 15:30 í dag.
Æfa í Tékklandi
23. október, 2010 (22:52), höfundur: Bjarni
Í framhaldi af góðum árangri á heimsmeistaramótinu í Tokyo í september fóru þeir Hermann Unnarsson og Þormóður Jónsson ásamt Ægi Valssyni til Tékklands og munu dvelja þar við æfingar í um átta vikur og þar mun aðstoða þá okkar kæri vinur Michal Vachun fyrrum landliðsþjálfari okkar Íslendinga. Með þeim í för átti Kristján Jónsson einnig að vera en því miður gat ekki orðið af því að þessu sinni. Þeir Hermann og Þormóður hafa dvalið við æfingar í Tékklandi áður og látið vel af því en Ægir er að fara í fyrsta skipti og þaðan munu þeir sækja mót og æfingabúðir sem gefast. Þau verkefni sem framundan eru er þátttaka á þremur alþjóðlegum mótum og er það fyrsta á morgun í Dubrovnik í Króatíu (XIII Int. judo Cup of Dubrovnik). Þeir keppa allir á morgun, Hermann í -81 kg, Þormóður í +100 kg og Ægir í -90 kg. og taka síðan að móti loknu þátt í nokkurra daga æfingabúðum. Í fyrra varð Þormóður í þriðja sæti og Hermann í því sjöunda. Helgina 6-7 nóvember keppa þeir á Opna Finnska í Helsinki og helgina þar á eftir eða 13-14 nóvember á Senior Europian Cup á Marabella á Spáni og einnig að því loknu þá taka við þriggja daga æfingabúðir. Á Opna Finnska og Europian Cup á Spáni fara fleiri Íslendingar þar á meðal nokkrir JR ingar eins og Kristján Jónsson og Jón Þór Þórarinsson. Um leið og eitthvað fréttist af gengi okkar manna verður það birt hér á vefnum.





