Júdófélag Reykjavíkur

SWOP Juniora

Þá er SWOP búið en því miður gekk ekki alveg eins vel og vonir stóðu til en þetta eru ungir krakka með litla keppnisreynslu erlendis svo allt fer þetta í reynslubankann.

Viðar Oddson U17 -81 kg átti fyrstu glímu í 11 manna útslætti og mætti mjög armlöngum Pólverja. Þeir glímdu út tímann og tapaði Viðar á yuko en fékk því miður ekki uppreisn þar sem Pólverjinn tapaði næstu viðureign. Daníela Daníelsdóttir sem keppti einnig í U17 og í -70 kg flokki var í þriggja manna riðli og tapaði báðum sínum glímum á fastataki en fékk bronsverðlaun engu að síður. Að sögn Axels þjálfara þá er hann sannfærður um að ef glímurnar í U17 eins og hjá Viðari hefði verið lengri en 3 mín hefði hann unnið glímuna þar sem að hann var að sækja í sig veðrið en Pólverjinn að gefa eftir og hvað varðar Daníelu þá virkaði hún óörugg. Hún á mikið meira inni og getur gert betur en reynsluleysið og kanski meiðsli í öxlinni sem hún hefur átt við undanfarið  hefur háð henni.   Helga Hansdóttir sem keppti í U20 -63 kg stóð sig vel en hún var í 10 manna útslætti og sat hjá í fyrstu en mætti síðan Sænskri stúlku og tapaði fyrir henni á yuko sem var óþarfi því Helga var síður en svo lakari aðilinn. Helga fékk uppreisn og vann fyrstu viðureignina þar gegn Sænskri stúllku sem hafði fyrr um daginn hreppt annað sætið í U17 og sama þyngdarflokki. Næst mætti Helga í keppni um bronsið Saren frá Finnlandi og leiddi glímuna með wazaari gegn yuko og þegar um 1 min. var eftir komst sú Finnska í gott bragð og skorar ippon sem var sorglegt því Helga var svo stutt frá bronsinu og hafði verið betri aðilin megnið af viðureigninni.  Sævar Róberts sem keppti einnig  U20 og í -90 kg flokki var í 10 manna utstlætti og sat hjá í fyrstu viðureign og mætir síðan Hollendingi sem hann tapar fyrir á ippon með ogoshi. Hann fær uppreisn og mætir Svía og skorar fljótlega á hann yuko og vinnur hann svo á ippon með drop seoinage. Næst mætti Sævar Finna sem að var mun sterkari og tætti Sævar í sig í tökunum en Sævar barðist mjög vel en varð að játa sig sigraðan og endaði í 7. sæti.  Hér má sjá öll úrslitin.

Síðan keyrir á Wordpress. Hönnun og forritun: Henrý Þór Baldursson 2010