Júdófélag Reykjavíkur

SWOP Juniora

Þá er SWOP búið en því miður gekk ekki alveg eins vel og vonir stóðu til en þetta eru ungir krakka með litla keppnisreynslu erlendis svo allt fer þetta í reynslubankann.

Viðar Oddson U17 -81 kg átti fyrstu glímu í 11 manna útslætti og mætti mjög armlöngum Pólverja. Þeir glímdu út tímann og tapaði Viðar á yuko en fékk því miður ekki uppreisn þar sem Pólverjinn tapaði næstu viðureign. Daníela Daníelsdóttir sem keppti einnig í U17 og í -70 kg flokki var í þriggja manna riðli og tapaði báðum sínum glímum á fastataki en fékk bronsverðlaun engu að síður. Að sögn Axels þjálfara þá er hann sannfærður um að ef glímurnar í U17 eins og hjá Viðari hefði verið lengri en 3 mín hefði hann unnið glímuna þar sem að hann var að sækja í sig veðrið en Pólverjinn að gefa eftir og hvað varðar Daníelu þá virkaði hún óörugg. Hún á mikið meira inni og getur gert betur en reynsluleysið og kanski meiðsli í öxlinni sem hún hefur átt við undanfarið  hefur háð henni.   Helga Hansdóttir sem keppti í U20 -63 kg stóð sig vel en hún var í 10 manna útslætti og sat hjá í fyrstu en mætti síðan Sænskri stúlku og tapaði fyrir henni á yuko sem var óþarfi því Helga var síður en svo lakari aðilinn. Helga fékk uppreisn og vann fyrstu viðureignina þar gegn Sænskri stúllku sem hafði fyrr um daginn hreppt annað sætið í U17 og sama þyngdarflokki. Næst mætti Helga í keppni um bronsið Saren frá Finnlandi og leiddi glímuna með wazaari gegn yuko og þegar um 1 min. var eftir komst sú Finnska í gott bragð og skorar ippon sem var sorglegt því Helga var svo stutt frá bronsinu og hafði verið betri aðilin megnið af viðureigninni.  Sævar Róberts sem keppti einnig  U20 og í -90 kg flokki var í 10 manna utstlætti og sat hjá í fyrstu viðureign og mætir síðan Hollendingi sem hann tapar fyrir á ippon með ogoshi. Hann fær uppreisn og mætir Svía og skorar fljótlega á hann yuko og vinnur hann svo á ippon með drop seoinage. Næst mætti Sævar Finna sem að var mun sterkari og tætti Sævar í sig í tökunum en Sævar barðist mjög vel en varð að játa sig sigraðan og endaði í 7. sæti.  Hér má sjá öll úrslitin.

Þormóður fær styrk

Þormóður fær styrk frá Ólympíusamhjálpinni vegna undirbúnings hans fyrir ÓL 2012.

Nánar  hér á heimasíðu ÍSÍ

SWOP Juniora 2010

Opna Sænska Juniora verður haldið í Stokkhólmi næstu helgi. Þátttakendur frá JR verða þrír og auk þeirra einn keppandi frá Akureyri. Þau sem fara eru Daníela Rut Daníelsdóttir -70 kg og Viðar Oddsson -81 kg sem keppa munu í aldursflokknum U17 og þau Sævar Þór Róbertsson -90 kg og Helga Hansdóttir úr Júdódeild KA í -63 kg sem keppa munu í aldursflokknum U20. Í hópnum átti einnig Ingunn Rut Sigurðardóttir að vera og átti að keppa í -57 kg U17 en því miður slasaðist hún á æfingu í síðustu viku og verður frá keppni í einhverjar vikur.  Á þetta mót í fyrra fóru þau Helga og Sævar ásamt þjálfara og fararstjóra sem var Hans Rúnar Snorrason. Helga tapaði fyrstu í U17 en fékk uppreisn en því miður meiddist hún í þeirri viðureign og varð að hætta keppni. Sævar fékk brons í U17 -90kg en tapaði fyrstu í U20 og féll úr keppni. Fararstjóri og þjálfari núna verður Axel Ingi Jónsson.  Mótið hefst kl 9 á laugardagsmorgun og lýkur seinnipartinn og á sunnudag taka þau þátt í eins dags æfingabúðum og koma svo heim á sunnudagskvöld. Við óskum þeim góðrar ferðar og góðs gengis.

Myndir af HM 2010

HM 2010-grein eftir Eyjólf Eyfells

Heimsmeistaramótið í júdó 2010 – Mín reynsla ( Höf. Eyjólfur Eyfells) 

September 12, 2010 kl. 12:21

Stressið fyrir heimstaramótið var farið að aukast. Bjarni Friðriks þjálfari og júdófélagar mínir, Hermann Unnarsson (Hemmi) og Kristján Jónsson (Stjáni) áttu að lenda á miðvikudaginn 8. sept. en Þormóður Jónsson (Móði) lenti deginum áður. Bjarni hringir síðan í mig á miðv. og spyr hvort ég sé ekki á leiðinni til þeirra en ég hafði ætlað að hitta þá á hótelinu þeirra um hádegi. Málið er að ég hafði ruglast í dögum og haldið að við ættum að hittast daginn eftir þannig ég var alveg úti að aka og í hinum megin í Tokyo þegar Bjarni hringdi. En ég hentist til þeirra eins hratt og ég gat (þurfti að hjóla eins og héri heim, ná í júdógallann og upp á lestarstöð og taka lestina í ca. 30 min.). Sem betur fer náði ég tímanlega. Mætti ég Stjána í andyrinu á Keio lúxus hótelinu þar sem skráningin fór fram og síðan hittum við Bjarna sem fékk passann minn og gat klárað skráninguna. Fórum við svo fimmenningarnir út að borða á veitingastaðnum Sizzler og þar át ég yfir mig sem átti eftir að bitna hart á mér á júdóæfingunni um kvöldið… var ekkert lítið óglatt
Lesa meira →

Heimsmeistaramótið 2010

Núna eru allir Íslendingarnir komnir til Tókýó þar sem heimsmeistaramótið í júdó 2010 fer fram dagana 9. til 13. september. Keppendur íslenska liðsins eru Þormóður Jónsson í +100 kg og opnum flokki, Hermann Unnarsson í -81 kg, Kristján Jónsson í -73 kg og Eyjólfur Eyfells sem einnig er í -73 kg. Þjálfari ferðarinnar er Bjarni Friðriksson.
Í morgun var dregið í alla flokka nema opin flokk og eru andstæðingar íslenska liðsins eftirfarandi:
Þórmóður Jónsson keppir, fyrstur Íslendinga, fimmtudaginn 9. sept. í +100 kg og eru 49 keppendur í þeim flokki. Þómóður verður að teljast frekar óheppinn með drátt því fyrsta viðureign hans er á móti Abdullo Tangriev frá Uzbekistan. Þórmóður hefur áður mætt Abdullo, á heimsmeistaramótinu í Rotterdam 2009, og varð hann að játa sig sigraðan eftir 3. mínútu glímu. Einnig má geta að Abdullo hreppti silfrið á ólympíuleikunum í Peking 2008.

Hér má sjá glímu Þormóðs við Abdullo á HM 2009

Hermann Unnarsson keppir föstudaginn 10. sept. í -81 kg og eru 80 keppendur í þeim flokki. Fyrsta glíma Hermans er á móti Waleed Hanfi (31 árs) frá Qatar. Waleed er ekki mikið þekktur júdómaður og má segja að Hermann sé heppin með drátt.

Hægt er að sjá 2 video af glímum Waleeds hér að neðan.
Grand Prix Hamborg 2009
Grand slam Paris 2009

Kristján Jónsson keppir laugardaginn 11. sept. Í -73 kg og eru 83 keppendur í þeim flokki. Fyrsta glíma Kristjáns er á móti Samuela Mateiyalona frá Fiji og verður hann að teljast heppin að fá Judoka frá Eyjaálfunum í fyrstu glímu.

Eyjólfur Eyfells keppir einnig laugardaginn 11. sept í -73 kg en hann situr hjá í fyrstu viðureign. Hann fær annað hvort kínverjann Yiao Jia eða egyptan Hussein Hafiz.

Við óskum strákunum góðs gengis og vonum að þeir geris sitt besta.

Hægt er að fylgjast með mótinu og skoða alla flokka á eftirfrandi vefsíðu:
http://ippon.org/

Tommy Mortensen

Tommy Mortensen fyrrum landsliðsmaður Dana og landsliðsþjálfari er væntanlegur á æfingu í JR mánudaginn 6. september. Tommy sem keppti í -66 kg flokki var einn allrabesti júdómaður norðurlanda hér á árum áður og keppti meðal annars á Ólympíuleikunum í Seoul 1988 og hafnaði í 11 sæti. Hann starfar núna sem júdókennari hjá boseihojskole og er hér á landi meðal annars til að kynna skólann.

Kim Christiansen og Tommy Mortensen

Síðan keyrir á Wordpress. Hönnun og forritun: Henrý Þór Baldursson 2010